Skip to main content

Félag eldri borgara á Fljótsdalshéraði

Ferðasaga

Sumarferð félagsins var farin í Þingeyjarsýslur, eða á kannske frekar að segja Þingeyjarsveit.  Þetta var tveggja daga ferð og var góð þátttaka eða 43 félagar. Lagt var af stað klukkan 9.00 mánudaginn 27.j úní , frá Hlymsdölum. Veðrið var ekki alveg eins og við hefðum kosið, lágskýjað og úrkoma. 

Leiðsögumenn í ferðinni voru Metúsalem Einarsson og Arndís Hólmgrímsdóttir,  frábærir leiðsögumenn, það var ekki komið að tómum kofanum hjá þeim.

Ekið sem leið liggur að Dettifossafleggjara og niður að bílastæði við  Dettifoss, þaðan gengið að útsýnisstað við fossinn.  Gaman að koma að fossinum þarna, vindurinn blés vatnsgufunni beint yfir útsýnisstaðina. Við skoðuðum líka  hina  útsýnisstaðina sem verið er að gera víð Jökulsárgljúfur, sem verða meiriháttar viðbót.

Ekið var áfram út á Kópasker og borðuð kjötsúpa á Skerkollu og safnið á Snartastöðum skoðað.  Óvænt var svo farið upp í Gilhaga og skoðuð ullarvinnslan þar, sem var frábært. Ekið áfram í náttstað  að Rauðuskriðu í Aðaldal.  Gistingin frábær og virkilega góður kvöldverður. 

28. júní  var ekið um í Aðaldal og Laxárdal.  Farnir margir útúrkrókar, Grenjaðarstaður , Hraunsrétt og farið alveg út í Sílakot og upp að Þverá í Laxárdal ,staðir sem margi hafa ekki skoðað.  Ekið upp í Mývatnssveit og drukkið kaffi í Kaffiborgir (Dimmuborgir).

Á heimleiðinni var að endingu komið við hjá Fjalla-Bensa í hrauninu á Mývatnsöræfum. Heim var svo komið rétt um klukkan 19.00. 

Allir glaðir og ánægðir.  Veðrið spilar alltaf heilmikið inn í ferðalög þannig var það líka í þessarri ferð, það skiptust á skin og skúrir, en heilt yfir var gott ferðaveður.

Fleiri myndir má sjá hér