Skip to main content

Nýtt af félagsstafinu

Jæja gott fólk. 

Þá er vetrarstarfið hafið fyrir nokkru. Ferðanefndin okkar hefur verið mjög virk og fóru þau vestur á firði og gerðu góða ferð. Sunnudaginn 17. október klukkan 14.00 ætla þau að sýna okkur hinum hvað merkilegt bar fyrir augu þeirra. Einnig verður afmæliskaffi fyrir þá sem eiga afmæli í september og október. Síðan verður tónlistaratriði. 

Haustfundurinn okkar var 5.október. Þar var farið yfir það sem í boði er í vetur í hreyfingu, hannyrðum, spil, söng og fleiru. Ánægjulegt var hvað margir mættu og áttum við notalega stund saman.   Vonandi verður veiran til friðs og við getum farið að skemmta okkur saman.

Njótum daganna.